EIXAMPLE, RAVAL OG GOTNESKA HVERFIÐ
BYGGINGARSAGA
Byggingarlist í Barselóna segir ekki bara sögu mismunandi menningarheima sem borgina hafa byggt síðustu tvö árþúsund, heldur einnig sögu stéttaskiptingar og sjálfstæðisbaráttu. Í göngunni verður gengið í gegnum þrjú ólík hverfi og skoðað allt frá Gaudí-byggingum til rómverskra rústa, og þess á milli stoppað við og smakkað á úrvalsvíni og spænskum smáréttum.

Allt að 24 manna hópar
Gangan hefst á Passeig de Gracía við Casa Battló, eitt af glæsilegustu Gaudíhúsunum. Við göngum inn í Eixample, stoppum í vínbúð og smökkum á spænsku freyðivíni í hæsta klassa, Corpinnat, beint úr héraði.
Gengið verður niður að háskólanum í Barselóna og inn í Raval. Hverfið er líklega það alræmdasta í Barselóna og hefur verið síðustu aldirnar. Þar mætast jaðarmenning og kirkjusagan, hámenning og lágmenning, á skemmtilegan máta.
Í göngunni stoppum við og brögðum á vermút, hefðbundnum drykk sem heimamenn gæða sér gjarnan á upp úr hádegi á sunnudögum. Með fylgir snarl sem passar vel við flókið bragðið í glasinu.
Ferðinni lýkur með innliti til handverksvíngerðarmanns sem er með akra í nágrenni borgarinnar. Hann framleiðir vín í litlu upplagi og selur það aðeins til veitingastaða. Vínin ættu því að vera ný og spennandi upplifun fyrir alla. Smakkað verður á fimm sérvöldum vínum frá svæðinu og sagt verður frá framleiðslunni á ensku og íslensku. Með víninu gæðum við okkur á léttu snarli.
Ferðin tekur um 4 klukkutíma og hentar allt að 24 manna hópum. Gangan er um það bil 3 kílómetra löng.
