VÍNSMÖKKUN
Vilt þú kynnast Spáni í gegnum eitt af því besta sem landið hefur upp á að bjóða? Léttvín!
Sóley Björk Guðmundsdóttir vínfræðingur leiðir gesti um svæðin með sérvöldum gæðavínum frá mismunandi vínhéruðum, sem eru jafn fjölbreytt og Spánn er stór.

Gestir fá góða yfirsýn yfir vínin sem þeir smakka og skilja betur muninn á milli svæða, (jafnvel á milli fella innan sömu svæða), sem hjálpar þeim ekki bara að að slá um sig í næsta matarboði heldur auðveldar valið næst þegar staðið er fyrir framan hillu af spænskum vínum.
Freyðandi guðaveigar
Rétt utan við Barselóna liggur Penedés, vínsvæði sem er nafntogað fyrir framleiðslu á bestu freyðivínum Spánar, þó víðar væri leitað. Þaðan kemur ekki aðeins megnið af öllu Cava sem framleitt er á Spáni heldur er það líka heimili Corpinnat, sem er freyðivín í hæsta gæðaflokki með einhverjar af ströngustu gæða- og umhverfiskröfum sem gerðar eru í freyðivínsframleiðslu.
Spænsk rauðvín - frá Tenerife til Priorat
Við þræðum okkur um Spán, hornanna á milli og smökkum á rauðvínum sem verða á vegi okkar á leiðinni. Ferðin hefst á Tenerife, sem er ekki aðeins vinsæll áfangastaður heldur einnig frábært vínframleiðslusvæði. Þaðan verður haldið áfram yfir á meginland Spánar þar sem stiklað verður á bæði minna og meira þekktum vínsvæðum. Ferðin endar svo í Priorat í Katalóníu, einu af aðeins tveimur vínræktarhéruðum Spánar sem er í hæsta gæðaflokki.
Það besta sem Katalónía hefur að bjóða
Katalónía er einstaklega skemmtilegur áfangastaður fyrir allt vínáhugafólk. Vínið sem framleitt er í héraðinu er mjög fjölbreytt og vínframleiðslusvæði svæðisins skara fram úr á ólíkum sviðum. Hér smökkum við á úrvalsfreyðivíni frá Penedés, fersku hvítvíni frá Aleilla, rauðvíni frá hinu nafntogaða Priorat svæði og frá Montsant, svæðinu sem umlykur Priorat.
