Hópur fólks á leið inn í húsasund. Sundið er skreytt hátt og lágt með litríkum fígúrum.

HÁTÍÐIR Í BARSELÓNA

Vetur

Jólamarkaðir
Desember

Miðbær Barselóna iðar af lífi í aðdraganda jólanna og fjöldi torga fyllast af sölutjöldum og litlum mörkuðum með fjölbreyttum vörum. Rétt skal þó vera rétt, jólamarkaðir í Barselóna eiga ekkert í stóru jólamarkaðina í Þýskaland. Þeir eru mun minni, en huggulegir, fallegir og veðrið er betra! Katalanskir jólasiðir eru nokkuð ólíkir þeim sem þekkjast norðar í álfunni og úrvalið á mörkuðunum helst í hendur við það. Þar er að finna gullfallega útskorin líki af jesú í jötunni, umkringdum foreldrum sínum og dýrum, svo ekki sé talað um sérstaka og sérkennilega jólastyttur katalana á borð við Caganer og Tío de Nadal.

Dia de Los Reyes Magos
5-6 janúar

Hápunktur jólahátíðarinnar er þrettándinn. Þá er haldið upp á dag konunganna þriggja með pompi og prakt. Hvert hverfi er með sín hátíðarhöld og litlar skrúðgöngur og skemmtanir, en það sem stendur upp úr er þegar bátur konunganna þriggja siglir inn í höfnina. Þeir leiða í kjölfarið risastóra skrúðgöngu í gegnum stór-miðbæinn.

Festa Major de Sant Antoni og Festa dels Tres Tombs
Miður janúar

Festa Major de Sant Antoni er hverfishátíð Sant Antoni, sem liggur á mörkum Eixample og Raval, um 15 mínútna gang frá Plaza Catalunya. Hátíðin er að mestu leyti hefðbundin katalönsk hátíð, með stórum tréfígúrum sem ganga í skrúðgöngu, blysum og flugeldum. Hápunktur hátíðarinnar er Festa dels Tres Tombs, tileinkuð heilögum Antoni sem hverfið heitir eftir. Sá var verndardýrlingur dýra og stór skrúðganga með hestvögnum og hinum og þessum dýrum gengur um hverfið og inn í miðbæinn.

Carnaval
Febrúar

Karnivalið í Barselóna einkennist af skrúðgöngum, búningum, tónleikum og partíum um alla borg! Hátíðin fer fram í kringum Öskudaginn svo dagsetningarnar eru breytilegar frá ári til árs. 

Llum
Febrúar

Byrjun febrúar er með bjartasta móti í Barselóna þökk sé Llum, listahátíð með áherslu á ljóst. Um borgina má finna fjölda bygginga upplýstar, ljósasýningar, drónasýningar og fleira.

Calcotada
Febrúar-mars

Calcotaða er ekki beint skipulögð hátíð, en um alla borg og nágrenni eru haldnar veislur þar sem þessi uppskerutíma þessa lauks er fagnað (calcot er milli blaðlauks og púrrulauks í stærð og gerð). Laukurinn er í heiðursæti á fjöldamörgum veitingastöðum en besta leiðin til að njóta hans þykir mörgum að fara á sveitaveitingastaði í útjaðri borgarinnar þar sem hann er grillaður, borinn fram með romesco sósu og grillað kjöt borið fram í kjölfarið.

Sumar

Sónar - Primavera Sound - Cruilla
Miður júní

Að telja upp allar tónlistarhátíðir Barselóna væri efni í ritgerð eitt og sér, en Sónar, Primavera Sound og Cruilla bera af í stærð og vinsældum.. Þær eru á tímabilinu byrjun júní fram í byrjun júlí.

Sant Joan
23. júní 

Jónsmessuhátíðin er tekin alla leið í Barselóna, með flugeldum, litlum sprengjum sem krakkar skemmta sér við á götunum, cava og sérstöku brauði með þurrkuðum ávöxtum sem eru seld um alla borg. Hápunktur hátíðarhaldanna fer fram á ströndinni sem breytist í eitthvað sem minnir á aðeins minna skipulagða Þjóðhátíð í eyjum, með aðeins betra veðri og aðeins meira af freyðivíni.

Festa Major de Raval
Miður júlí

Raval er mesta fjölmenningahverfi Barselóna, rétt um helmingur íbúa eru innflytjendur. Hverfið er þekkt fyrir öflugt listalíf, veggjakrot, vasaþjófnað og skemmtilega stemningu. Hverfishátíðin hefur því eilítið annan brag en aðrar hverfishátíðir í borginni en er ekki síður skemmtileg og lífleg á allt annan máta.

Pride Barcelona
Lok júní til loka júlí

Þrátt fyrir að Pride hátíðin sé haldin í um mánuð er hápunkturinn í seinni hluta júlí. Gangan er ekki jafn íburðamikil og í mörgum borgum í norður Evrópu en tónleikarnir og gleðin sem fylgir í kjölfarið gefur þeim þó ekkert eftir. Stórt svið fer upp við Sigurbogann og minni svið á öðrum torgum um borgina, með tilheyrandi tónlist og gleði!

Festa de Sant Roc
Miður ágúst

Gotneska hverfið státar af elstu hverfishátíðinni í Barselóna og fer hún að mestu fram á Placa Nova. Hún á rætur sínar að rekja til 16. aldar og stór hluti hátíðarhaldanna er óbreyttur. Þar má finna skemmtilegar og aldagamlar uppákomur, snarl og drykki, í bland við tónlist, dansandi fólk og risastórar dansandi tréfígúrur. 

Festes de Gracía
Miður ágúst

Allra íburðamesta og vinsælasta hverfishátíðin er Festes de Gracía sem stendur í heila viku. Íbúar skreyta Gracía hverfið (um 20 mínútna gang frá Plaza Catalunya) með miklum metnaði. Götunum er breytt í aðra heima, allir með mismunandi þema. Sem dæmi má nefna Lísu í undralandi, neðansjávarþema og drekaþema. Hverfið breytist í hálfgert Disneyland sem fólk hefur smíðað heima í stofu.

Vor

Barcelona beer festival
Miður apríl

Spánn kann að vera þekktari fyrir vín, en heilt yfir drekka spánverjar meira af bjór og framleiða gríðarlega mikið af honum. Barcelona Beer Festival er þriggja daga hátíð með 7000 fermetra af sýninga- og smakksvæði bæði fyrir almenning og fagfólk. Hátíðin dregur saman bæði stóra framleiðendur og litla handverksframleiðendur frá öllum kimum Spánar, sem bjóða upp á sínar veigar á milli matarvagna með fjölbreyttu úrvali af snarli.

Páskarnir

Dymbilvikan í Barselóna ber þess merki að borgin er að stórum hluta kaþólsk, Skrúðgöngur um gotneska hverfið eru með greinilegum kaþólskum brag. Annars einkennist páskavikan af fólki að njóta lífsins í fríi, mikið er af tónleikum og allskonar menningarviðburðum um alla borg. 

Sant Jordi
23. apríl

Katalanar gefa lítið fyrir valentínusardaginn. Þeir eiga Sant Jordi, dag heilags Georgs, sem að þeirra mati er miklu betri og ég er ekki frá því að ég sé sammála. Borgin fyllist af tjöldum sem selja rósir og bækur, sem tíðkast að elskendur gefi hvoru öðru í tilefni dagsins. Hátíðin er innblásin af heilögum Georg, verndardýrlingi Katalóníu, sem sigraði dreka, bjargaði prinsessu, og þar sem blóð drekans rann spruttu upp rósir. Besti staðurinn til að upplifa stemninguna er við Casa Battló, einu af þekktustu hönnunarverkum arkítektsins Antoni Gaudí. Hönnunin er innblásin af sama dreka og húsið rósum skreytt í tilefni dagsins. Það stendur á hinni frægu verslunargötu Passeig de Gracía, sem er gjörsamlega undirlögð af fólki og sölutjöldum þennan dag.

Haust

Diada (þjóðhátíðardagur Katalóníu)
11. september 

Þjóðhátíðardagur Katalana er fjarri okkar 17. júní en mjög áhugaverður að upplifa. Katalónsk menning er í brennidepli með castellers (mennskum turnum, þar sem tugir manna koma saman og standa á öxlunum á öðrum og keppast um hver byggir hæsta turninn), dansandi risastórum tréfígúrum og fleira. Dagsetningin er tilvitnun í daginn sem Katalónía tapaði sjálfstæði sínu til Spánar 1714 og víða um borg má finna kröfugöngur og svið með áköfum ræðumönnum. 

Merce
Fimm daga hátíð í kringum 24. september 

Merce er Menningarnótt Katalóníubúa og líklega stærsta hátíð ársins. Borgin fyllist af fjölbreyttum viðburðum, flugeldum, tónleikum, gífurlegu magni af cava, og alls konar skemmtunum. Hátíðin er í grunnin kaþólks, tileinkuð og nefnd eftir verndardýrlingi Katalóníu, en hátíðarhöldin eru allt annað en kirkjuleg.

Festa Major de Barceloneta
Lok september/byrjun október

Hverfishátíð Barceloneta, hverfi þekktast fyrir samnefnda strandlengju, er frekar afslöppuð og heimillisleg ef svo má að orði komast. Hún minnir margt á bæjarhátíð í litlum bæ út á landi. Þar er þó að sjálfsögðu að finna dansssýningar frá hinum og þessum menningarheimum sem byggja hverfið, tónlist og skemmtanir.

Castanyada
31. október

Hér er á ferðinni katalónsk hátíð sem slær saman við Hrekkjavöku í einstaklega skemmtilegum menningarhrærigraut. Castanyada er upprunalega uppskeruhátíð og í kringum þennan dag poppa upp fjöldi götusölumanna með lítil grill sem selja ristaðar kastaníuhnetur og grillaðar sætar kartöflur. Annað og ekki síðra snarl sem er tengt deginum eru litlar marsípankúlur með furuhnetum sem fást í flestum bakaríum og kaffihúsum. Hátíðinni fylgja margir menningarviðburðir, tónleikar og fleira, sem renna saman við uppáklæddar kynjaverur hrekkjavökunar sem hægt og rólega er að ryðja sér til rúms í borginni.

Barcelona Jazz Festival
Nóvember

Í nóvermber er byrað að kólna og kominn tími til að halda sig innandyra, að mati heimamanna. Þá taka við annarskonar hátíðir, á borð við Barcelona Jazz Festival, In-edit og Festival de Cinema independient kvikmyndahátíðirnar, og Manga hátíðin.