VÍNRÆKT Á SPÁNI
FRÁ RIOJA TIL JUMILLA
Víngerð á Spáni er rótgróin menningarhefð sem á sér yfir 2000 ára sögu en landið hefur verið eitt af stærstu vínframleiðslulöndum heims í aldaraðir. Í dag er Spánn þriðja stærsta framleiðsluland vína á eftir Ítalíu og Frakklandi, með yfir 1,2 milljónir hektara af vínvið og breitt úrval þrúgutegunda. Spánverjar nýta fjölbreytt loftslag og jarðveg landsins til að framleiða margvíslegar víngerðir með ýmis sérkenni, allt frá kröftugum rauðvínum til ferskra hvítvína og ljúffengra freyðivína.
Helstu vínræktarsvæði Spánar
Þótt Spánn sé víðáttumikið land eru nokkur afmörkuð svæði sérstaklega þekkt fyrir framúrskarandi vínframleiðslu. Meðal þeirra má nefna La Rioja, Priorat, Ribera del Duero og Rías Baixas.
Rioja er líklega frægasta vínræktarsvæði Spánar og hefur öðlast alþjóðlegt orðspor fyrir rauðvín. Þau eru flest gerð úr Tempranillo-þrúgunni og eru nánast alltaf látin þroskast í eikartunnum sem gefur víninu kryddaða tóna. Vínin eru þekkt fyrir flókið bragð með jafnvægi á milli ávaxta, sýru og eikar. Rioja hefur orðspor sitt ekki að ástæðulausu, en það er annað aðeins tveggja spænskra vínhéraða sem er skipað í hæsta gæðaflokk, hitt héraðið er hið talsvert minna Priorat.
Priorat er staðsett í Katalóníu og er frægt fyrir að framleiða hágæðavín úr þrúgum á borð við Garnatxa og Carinyena. Svæðið er ekki nærri því jafn þekkt og Rioja, en það hefur minna að segja um gæði vínanna og meira að segja um smæð þess og hve fáa lítra af víni fæst úr hverjum ferkílómeter þar. Vínræktarsvæðið einkennnist af bröttu landslagi með mikið af svörtu flögubergi (licorella) sem gefur vínunum ákveðið bragð af steinefnum þétt bragð vegna þess hve fáar þrúgur hver vínviður getur borið. Priorat-vínin eru jafnan kraftmikil og flókin. Þau eldast vel, rétt eins og vín frá La Rioja og öðru þekktu vínhéraði, Ribera del Duero.
Ribera del Duero liggur meðfram árbökkum Duero-árinnar og er þekkt fyrir að framleiða kröftug og tannísk rauðvín. Vín frá Ribera del Duro eru gjarnan gerð úr þrúgunni Tinta del País, en það er sama vínþrúga og kallast Tempranillo í La Rioja. Vín frá þessu vínsvæði bera keim af dökkum berjatónum og hafa dýpt sem hentar vel fyrir geymslu til lengri tíma. Rétt eins og fyrri vínsvæðin tvö framleiðir Ribera del Duero einna mest rauðvín en öllu minna af hvítvíni. Þar trónir Rías Baixas á toppinum.
Rías Baixas er fremsta hvítvínssvæði Spánar og er staðsett í Galísíu, norðan við Portúgal. Stór hluti af vínekrunum liggja nálægt sjónum, sem gefur vínunum ákveðinn saltkeim sem gefur víninu skemmtilega dýpt. Á þessu svæði eru vín sem gerð eru úr Albariño-þrúgunni ríkjandi. Vínin frá Rías Baixas eru flest fersk, létt og sýrumikil með sítrus- og steinefnabragðtónum sem þykja sérlega hressandi.
Penedés liggur í aðeins um 30 mínútna lestarferð frá Barselóna og er þekktast fyrir freyðivínsframleiðslu, en þaðan koma um 95% af öllu freyðivíni sem framleitt er á Spáni. Framleiðslan er fjölbreytt og hægt að finna ódýr freyðivín þaðan á nokkra hundraðkrónur, upp í flöskur sem kosta tugi þúsunda og gefa kampavínum Frakklands ekkert eftir.
Minna þekkt vínræktarsvæði
Þó að stór vínsvæði eins og La Rioja og Ribera del Duero séu þekkt víða um heim fyrir framúrskarandi vín eru einnig minni svæði á Spáni sem hafa byggt upp sterka framleiðslu einstakra vína. Má þar nefna svæði eins og Bierzo, Jumilla og Montsant.
Bierzo-vínsvæðið er í norðvesturhluta Spánar og er eitt þeirra svæða sem hafa notið aukinna vinsælda á undanförnum árum. Vín frá þessu svæði hafa rauða berjaáferð og bera keim af léttri sýru og kryddi. Bierzo framleiðir aðallega rauðvín úr Mencía-þrúgunni sem gefur vínunum léttari karakter en einkennir mörg af þeim þyngri vínum sem Spánn er þekktur fyrir.
Jumilla er annað áhugavert vínsvæði en það er í suðausturhluta Spánar. Þetta svæði er þekkt fyrir að framleiða öflug rauðvín úr Monastrell-þrúgunni (einnig þekkt sem Mourvèdre). Vínin frá Jumilla eru full af dökkum ávöxtum og krydduðum tónum og eru jafnan mjög gæðaleg fyrir hæfilegt verð.
Montsant er við hliðina á Priorat og er minna þekkt vínsvæði. Hér eru þó framleidd frábær vín sem sumir telja að jafnist meira að segja á við vínin frá hinum fræga nágranna þeirra. Rétt eins og í Priorat eru Garnacha og Cariñena helstu þrúgur svæðisins og vínin hafa flókið bragð með dökkum berjum, blómatónum og örlítið jarðefnalegu bragði.
Jerez má deila um hvort að þyki minna þekkt vínsvæði, þaðan koma líklega þekktustu vín Spánar, sjerrí. Þessi fjölbreyttu og einstaklega skemmtilegu vín frá suður Spáni eru látin komast í snertingu við súrefni á meðan þau þroskast, sem gefur þeim aukna dýpt og bætir t.d. bragði af hnetum við vínið. Sérrí eru gerð á nokkra mismunandi vegu, bæði létt og þurr eins og hvítvín, þurr vín með djúpu bragði og dökkum lit, og svo sæt að þau minna á síróp.
Spánn er vínræktarland sem býður upp á ótrúlega fjölbreytt vínsvæði og -þrúgur. Frá hinum frægu vínsvæðum La Rioja og Priorat til minna þekktra svæða eins og Bierzo og Jumilla eru spænsk vín í miklum metum hjá bæði sérfræðingum og áhugafólki um allan heim. Vínframleiðsla Spánar heldur áfram að þróast og bjóða upp á spennandi nýjungar í bland við hina rótgrónu víngerðarhefð sem hefur mótað landið í aldaraðir.