HÁTÍÐARKASSINN

SEX SÉRVALDAR FLÖSKUR AF SPÆNSKU HANDVERKSVÍNI

Sex mismunandi vínflöskur í þyrpingu á gegnsæjum grunni.

Hátíðarkassinn inniheldur sex spænsk hágæðavín. Vínin eru sérvalin af Sóleyju Björk Guðmundsdóttur vínfræðingi sem býr og starfar í Barselóna.

Sóley valdi vín frá svæðum og handverksframleiðendum sem skara fram úr og eru bæði spennandi og bragðgóður kostur. Úrvalið í kassanum er fjölbreytt, en í honum er að finna eitt freyðivín, eitt léttara en bragðmikið hvítvín, eitt hvítvín sem er sérstaklega matarvænt, og þrjú rauðvín frá sumum af hæst metnu vínframleiðslusvæðum Spánar, Montsant og Priorat. Vínin fara bæði vel með mat og til að sötra ein og sér.

Þessi vín geta eru góð fjárfesting. Hægt er að drekka þau við öll tækifæri og þau geta komið sér vel fyrir hvaða hátíðarhöld sem er, á þessu ári eða eftir 5 ár, því vínin eru öll gæðavín sem hafa burði til að eldast!

Hátíðarkassinn kostar 45.000 krónur. Hann er fluttur inn til Íslands í takmörkuðu upplagi.

Hægt verður að sækja kassan á höfuðborgarsvæðinu eða fá hann heimsendan með Dropp.

Hvað leynist í kassanum?

Dökk freyðivínsflaska með grænum toppi og gulum miða.

Finca Valldosera Reserva

Freyðivín - árg. 2014

Gullin hvítvínsflaska með gulum vaxtoppi og hvítum miða.

Albaroque

Hvítvín - árg. 2021

Brúngullin hvítvínsflaska með svörtum toppi og ljósbrúnum miða.

Foresta Xarel.lo

Hvítvín - árg. 2022

Svört rauðvínsflaska með silfruðum toppi og svörtum miða.

Las Estellades

Rauðvín - árg. 2021

Svört rauðvínsflaska með svörtum toppi og hvítum miða.

Ruella

Rauðvín - árg. 2021

Svört rauðvínsflaska með svörtum toppi og hvítum miða.

La Guinardera

Rauðvín - árg. 2020

Senda
vínpöntun