FÁÐU BRAGÐ AF
BARSELÓNA
Viljir þú kynnast bestu hliðum Barselóna, þá gerir þú það í gegnum matarmenningu Katalóníu.
Sóley Björk Guðmundsdóttir, vínfræðingur og þjóðfræðingur, býður bæði upp á vínsmakkanir og menningargöngur með matar- og vínívafi.
Leyfðu Sóleyju að leiða þig í gegnum króka, kima og leynda stíga borgarinnar þar sem menningin mætir þér og bragðlaukarnir fá að dansa.
Fyrir vínáhugafólk býður Sóley einnig upp á sérsniðna vínsmökkun og vínferðir þar sem spænsk handverksvín fá sviðið.
ÞINN
LEIÐSÖGUMAÐUR
Sóley Björk Guðmundsdóttir er vínfræðingur, þjóðfræðingur og menningarmiðlari. Hún hefur búið í Barselóna langa hríð og sérhæfir sig í vínfræðum með sérstaka áherslu á spænsk vín.
Sóley er vottaður vínfræðingur, eða sommelier. Hún er með gráðu frá Wine and Spirit Education Trust (WSET) í London, einum virtasta vínskóla heims. Hún er við það að ljúka hæstu gráðu WSET og verður þá ein af örfáum Íslendingum sem hafa lokið því stigi.

