MENNING
Spánn er rétta landið fyrir þau sem vilja taka sér tíma í að soga til sín menninguna, maula á bragðgóðum smáréttum og skola þeim niður með góðu víni. Hér er enginn að flýta sér heldur má leyfa sér að njóta lífsins í góðum félagsskap. Bragð í Barselóna býður upp á leiðsöguferðir í borginni þar sem leitast er við að fanga þetta andrúmsloft.

VÍN OG MATUR
Ef það er eitthvað sem Spánn gerir vel, þá er það að elda góðan mat og brugga ljúffeng vín. Ef þú vilt undirbúa þig undir heimsóknina til Barselóna og slá svolítið um þig í leiðinni þá getur þú fræðst aðeins um spænska eldhúsið og vínrækt á Spáni hér á síðunni.

LEIÐSÖGUMAÐURINN
Sóley Björk Guðmundsdóttir er vínfræðingur, þjóðfræðingur og menningarmiðlari. Hún hefur búið í Barselóna í nokkur ár og sérhæfir sig í vínfræðum með sérstaka áherslu á spænsk vín. Hún hefur ástríðu fyrir alþýðlegri menningu og hoppar hæð sína af gleði þegar hún finnur fullkomna vínpörun með matnum.