Gömul klausturbygging í Raval hverfinu, hár steinkross stendur fyrir framan

BARSELÓNA

Barselóna er þekkt fyrir iðandi mannlíf. Það er aldrei skortur á afþreyingu og göturnar eru dásamlega líflegar innan um glæsilega byggingarlistina. Matur er yfirleitt í hjarta samskipta, fólk hittist sjaldan án þess að eitthvað ætt sé í seilingarfjarlægð og í kjölfarið tekur sobretaula (spænska: sobremesa) við, að sitja áfram við borðið og spjalla eftir máltíðina. Íbúðir í borginni eru margar litlar svo fólk hittist frekar á kaffihúsum og veitingastöðum en í heimahúsi og þar sem sólríkt miðjarðarhafsloftslagið ræður ríkjum kjósa margir að sitja úti og njóta mannlífsins og verðursins. Íbúar eru þar að auki mjög skemmtanaglaðir, það líður ekki sá mánuður, varla sú vika, að ekki séu einhverskonar hátíðir eða uppákomur í borginni.

Iberico skinka á bretti í forgrunni, ostabakki, freyðivinsflaska og vínglas fyrir aftan

Barselóna er höfuðborg Katalóníu en þrátt fyrir að katalónsk menning og saga sé víða fyrir augum þá ber borgin þess greinileg merki að 25% íbúa eru innflytjendur. Borgin dregur að sér fólk alls staðar úr heiminum og er fjölbreytt eftir því. Hverfin hafa hver sín einkenni og sinn sjarma, sem fer ekki bara eftir arkítektúrnum og aldrinum heldur einnig eftir samsetningu íbúa. Það mætti í raun segja að Barselóna sé borg samansett af mörgum bæjum, hver með sín sérkenni sem er ótrúlega skemmtilegt að taka sér tíma til að kynnast.

Vegglist á stórum vegg sem sýnir brosandi konur, tvær með slæður að hætti múslima og ein með afrískan höfuðklút. Á lægri vegg er mynd af lögreglumanni að handtaka mann.